Óritskoðað!!!

Ekki fyrir viðkvæmar sálir;-)

14.05.2006 00:12:00 / ernagr

Farin Bless

Ég er búin að flytja bloggið.....nenni ekki að vera á þessu leiðinda kerfi lengur......

Nýja bloggið er  http://erna.xblogg.is/


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 23:40:44 / ernagr

fyrirsögn

Ég hef nákvæmlega ekkert að segja......................................

Nema jú mér finnst ég ekki mjó lengur.......heldur er ég í offitukasti:cry: er semsagt með feituna og hvítuna á háu stigi:$ ég er að hugsa um að fara að fara í ljós sko....það er nú tími til komin:S og ég má víst ekki fara í aerobikk né gera magaæfingar eða neitt almennilegt í 3 mánuði:$útaf keisaranum......

Ég er eiginlega búin að ákveða að fara austur um sjómannahelgina,pabbi var að bjóða okkur það því það er auðveldara fyrir okkur að koma þangað en fyrir alla nánustu ættingja að koma hingað. Þessi sjómannhelgi verður eitthvað með öðru sniði en þær hafa verið hjá manni hingað til:lol: Allavega þær síðustu sem ég var þarna og ég Oddný svana og Siggi Sölvi ákváðum að vera hrókar alls fagnaðar og alltaf endaði einhver á spítala....nefni engin nöfn:lol: en ef Oddný og Siggi ætla að halda í hefðina verða þau að gera það án mín í þetta skipti þó svo ég verði á svæðinu:lol:

Litla krúttið mitt dafnar bara vel og það gengur allt vel hjá okkur:) Ég er alltaf að bæta við nýjum myndum á síðuna hanns;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 13:22:29 / ernagr

09/05

Dengsi yndislegi afi minn á afmæli í dag:) til hamingju með það afi:)

Ég hef nú ekkert svo mikið að blogga um þessa dagana þar sem ég er náttla bara heima að huxa um krílið mitt:) ég ætla ekkert að fara að útlista fyrir ykkur hvað ég skipti á mörgum bleyjum og svona:lol: en þetta er alveg yndislegt:)

Ég ætla að segja ykkur dáltið fyndið:lol: en sko mér finnst ég vera ógisla mjó:lol: en er það náttla ekkert sko:lol: ég fór út í búð áðan og ætlaði sko aldeilis að troða mér í gömlu buxurnar mínar:S það vantaði nú bara herslumuninn:) en gekk samt ekki alveg:lol: en maginn á mér er alveg að verða sléttur aftur:lol: ég skal í þessar buxur eftir nokkrar vikur:lol: en það er ótrúlegt hvað manni finnst maður mjór þegar kúlan er farinn:lol:

Ég fékk algjört kast í gær,Henry var að tala um að það hefði verið gaman að festa á filmu þegar læknateimið þarna á spítalanum stoð í samningaviðræðum við mig kolbrjálaða:lol: við gátum alveg séð spaugilegu hliðina á þessu núna sko.....:lol: en þetta var þanig sko að ég bilaðist við skurðlækninn þegar hann sagði að ég ætti að fara í keisara:) og ég harðneitaði að fara vakandi í það og þetta endaði með því að það þurfti að kalla til 2 svæfingarlækna til að semja við mig um þetta:lol: og við erum að tala um að ég var eins snar og ég get orðið hed ég:lol: þeir hafa örugglega velt því fyrir sér að kalla á geðlækni líka8) gaman að þessu svona eftir á:lol: en ég get alveg sagt ykkur það að ég hefði aldrei farið vakandi í þetta ef ég hefði ekki verið orðin örmagna á líkama og sál eftir 16 tíma fæðingartilraun8) en svo var þetta náttla ekkert mál;)

Jæja best að fara að sinna heimilisverkum:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 11:31:23 / ernagr

komin síða:-)

Ég er búin að gera síðu á barnalandi  www.barnaland.is/barn/46860

Þið þurfið lykilorð....sendiði bara meil og ég sendi það um hæl:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 22:45:17 / ernagr

Home sweet home

Jæja þá erum við komin heim loksins:) ég og litli snúllinn minn:) sem er æðislegasta mannvera sem ég hef komist í tæri við:)

Eins og flestir kanski vita þá emdaði þetta allt saman með keisara:S en fólkið þarna uppgvötaði loksins eftir 16 tíma fæðingu að ég gæti aldrei fætt barn eðlilega:| það semsagt færi aldrei heilt barn niður grindina í mér:| þannig að þá var mér rúllað snarvitlausri inn á skurðstofu8) en þetta var nú ekkert svo mikið mál svona eftir á að hyggja;) svo voru verðlaunin náttla svo frábær að ég mundi gera þetta allt aftur en bara fyrir hann.....engann annann:)

Ég held að ég sé á góðri leið með að dekra litla prinsinn svoltið8) allavega þarf hann ekki mikið að leggja á sig til þess að ég taki hann og kúri með hann og svo vil ég helst sofa með hann hjá mér líka:)

Ég get því miður ekki sett mynd af honum inn á þetta blessaða blogg:( það bara virkar ekki sama hvað ég reyni ..........

Takk fyrir allar baráttukveðjurnar og hamingjuóskirnar í kommentunum á síðasta bloggi:) en ég skal upplýsa ykkur um það að það var enginn maskari eða meik eftir á andlitinu á mér þegar mér var rúllað niður á sængurkvennadeild eftir þetta alltsaman:) en ég bætti úr þessu öllusaman strax daginn eftir áður en ég fór að spranga um gangana þarna til að enginn fengi nú áfall:) var voða fín:lol:

nóg í bili.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 21:55:52 / ernagr

það er byrjað

Já af því að þið eruð að andast úr forvitni...þá er ég komin af stað í fæðingu;) og já sennilega eina manneskjan á jörðinni sem gefur sér tíma til að blogga og mála sig með hríðir;) en ég fékk að skreppa heim í klukkutíma til að drepa tímann. þar hafiði það og gangi mér sem allra best!!!

» 24 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 22:46:01 / ernagr

Any news....

Það er ekkert að fretta hjá mér en ég ákvað að blogga því ég veit að það eru nokkrir að deyja úr forvitni hvort ég sé farin að gjóta, en svo er ekki:)

Við mamma tókum þrifnaðarkast hérna í dag og þrifum allt sem hægt er að þrífa í einni íbúð og utandyra líka:) eins gott að hafa allt sótthreinsað þegar erfinginn mætir á svæðið:) svo henti mamma mér ofan í heitt bað með imolíu í,það á víst að koma einhverju af stað:lol: en það virðist ekki hafa dugað þar sem ég sit hér og blogga;)

well ekkert meira að segja í bili.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 23:57:21 / ernagr

heilalaus

Ég held ég hljóti að vera orðin heiladauð:$ ég gleymdi að horfa á Desperate housewifes:cry: Ég meina hvernig er það hægt??????? Svona lagað hefur aldrei komið fyrir mig áður8|

Annars er ekkert að frétta.....var hjá mömmu í dag,litaði svo á mér hárið og var að flýta mér að því þannig að ég var komin með doppótta bringu og bumbu áður en ég vissi af:$ náði samt að nudda það af sem betur fer ef ske kynni að ég þyrfti að fara að flagga þessu.....ekki smekklegt kanski:$ svo bauð ég mömmu í mat og thats about it sem hefur á minn dag drifið.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 23:16:46 / ernagr

miðvikudagur

Nú er ég komin í frí mér til mikillar armæðu8| fór í vinnuna í dag og gekk frá og svona:whut: mig langaði nú ekkert til þess en verð víst bara....þannig að mér á pottþétt eftir að leiðast ógurlega næstu daga,nema náttla ég fari að gjóta:) En ég hef samt svona eitt og annað að gera,mamma ætlar að koma á morgun eða hinn og hjálpa mér að þrífa íbúðina því ég get ekki gert alveg allt sjálf útaf helvítis rifinu:$ eða ég gæti það kanski en það gæti orðið vont og ég gæti gert illt verra.....svo verð ég að lita á mér hárið og svona,ætlaði reyndar á stofu en varð að afpanta síðast útaf helvítis rifinu:$ og ég kann eiginlega ekki við að vera að bóka annann tíma og þurfa svo kanski að afpanta hann eða eitthvað:$

Ég er algjörlega búin að læra það núna að maður á ekki að borða kvöldmatinn og horfa á strákana um leið:S sko um daginn þá eyðilagðist ein máltíð útaf áskorun sem fól í sér að sleikja naflann á Gussa og svo í kvöld var ég að snæða og horfa á þetta og þá átti sér stað sú áskorunn að fá rass í andlit8| þvílíkur viðbjóður........ég reyni þetta ekki aftur;)

Lifið heil


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 20:07:00 / ernagr

25/04

Það er kanski komin tími á meira blogg.....ég reyndar bloggaði ofurbloggi í gær en það hvarf og ég varð svo brjál að ég nenniti ekki að reyna aftur:evil: Ég er búin að vera að drepast úr leiðindum hangandi hérna heima hjá mér og get nánast ekki gert neitt útaf helvítis rifbeininu og svo er ég enn með flensuna og hósta útí eitt sem er ekkert til að hjálpa:$ En ég ætla í vinnuna á morgun:) en svo neyðist ég sjálfsagt til að fara að taka mér frí:$enda komin á tíma og læknirinn og ljósan búin að banna mér að vinna meira:$ En svona aðgerðarleysi á bara enganveginn við mig sko....

Ég er byrjuð að finna einhverja allskonar skrýtna verki en kanski eru það bara fyrirvaraverkir,ekki þekki ég þetta8| já og það eru sennilega einhverjir forvitnir að vita hvað læknirinn sagði í gær...en hann sagði að ég ætti bara að fæða eðlilega þó ég sé brotin,ég bara fæ einhverja deyfingu,ég er voða fegin að þurfa ekki að fara í keisara;)

Æ ég hef eiginlega ekkert að segja því það náttla gerist svosem ekki mikið hérna heima hjá mér annað en það að ég og hundarnir ráfum hér um og leggjumst niður stöku sinnum:S vonandi hef ég eitthvað meira spennó að segja á morgun;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 21:12:55 / ernagr

/(/(/(/(/(/(/(/(

Í dag langaði mig að þrífa íbúðina,fara í Ikea,fara í kringluna,fara í smáralind:( en náttla gat ekki gert neitt af þessu:cry: eyddi deginum semsagt ranglandi um íbúðina að reyna að finna mér afþreyingu:S mér er samt farið að líða aðeins betur og fer svo til doksa á morgun og svona,kanski get ég farið í vinnuna á þriðjudaginn:) ég vona það allavega,en við skulum sjá hvað doksinn segir:$

Ég fékk einhverja skrýtna verki áðan og hélt kanski að það væri eitthvað að fara að gerast en ég veit ekki sko...... fór allavega í sturtu og fjarlægði óæskileg líkamshár,sem sum reyndar þarf ég að fjarlægja blindandi8) svo setti ég oní tösku hluta af því sem ég ætla að taka með mér,semsagt krúttlegu háhæluðu inniskóna með dúskonum,silkináttkjól,brók og brjóstahaldara (sem er í stærri kantinum) svo er ég með silkináttsloppinn í þvottavélinni og málningadótið og tannburstinn og það fer náttla bara seinna því það er í stöðugri notkun, segiði mér ef ykkur dettur eitthvað fleyra í hug sem ætti að vera þarna oní?? já myndavélin má ekki gleyma henni....... en þetta er samt örugglega ekkert að fara að gerast núna en það er örugglega gott að hafa þetta allt reddý;)

Ég hef náttúrulega ekkert meira að segja í bili þar sem það gerist ekki mikið hjá mér ranglandi hér um íbúðina:) kanski á morgun;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 09:34:58 / ernagr

..................

Vá hvað ég varð pirruð á þessu helv....bloggkerfi núna, þurfti að skrá mig inn á eitthvað helv... minn sirkus til að geta haldið áfram:$

Annars er ég vægast sagt mjög pirruð þessa dagana:evil: enda kyrrsett heima hjá mér og get ekkert gert:S Afhverju??....Já sko ég er búin að vera með flensu eins og áður hefur komið fram og þessari flensu fylgir mikill hósti:S Og ég eins og mér einni er lagið reyndi ekert til að liggja þetta úr mér heldur er ég búin að vera í vinnuni með þetta allann tímann og í gær fékk ég rassskellinn fyrir ferðina:cry: sko ég fór í vinnuna alveg að drepast þrátt fyrir að móðir mín hefði reynt að fá mig ofan af því daginn áður:$ ég nátta hef aldrei verið þekkt fyrir að hlusta á það sem er sagt við mig:S og þessi ferð í vinnuna endaði uppi á slysó:evil:en þannig er mál með vexti að ég fékk eitthvað þvílíkt hóstakast í vinnuni og helv....rifbeinið fór bara alveg í  klessu:cry: þetta var ekkert smá vont:cry:og ég hélt að það væri bara að stingast inn í lungað á mér eða eitthvað:cry: svo Harpa var svo sæt að skutla mér upp á slysó svo ég gæti nú látið kíkja á þetta og jújú beinið mölbrotið og endarnir á því að nuddast saman eða eitthvað:$ þið getið rétt ímyndað ykkur unaðinn:$ en allavega þá er ég bara sárkvalinn og get ekkert gert og það er allt vond,eins og bara sá einfaldi hlutur að anda:$ og verst af öllu er að liggja:$ og ekki má ég taka inn enin öfga sterk verjalyf....þannig að ég er að verða geeeeeeðveik:evil: mamma kom til mín í gær og gisti hjá mér og avona til að hjúkra mér því ég er eins og aumingi8| og það á engann veginn við mig að vera sollis sko8| svo sagði doksinn þarna á slysó að það væri alls óvíst að ég gæti fætt barnið á eðlilegann hátt svona á mig komin:$ en ég fæ úr því skorið á mánudaginn hvað er hægt að gera....en ég get alveg sagt ykkur það að keisari er mín versta martröð:$mig langar ekki í þannig.maginn er lengur að jafna sig og maður þarf að vera á sjúkrahúsi í 5 daga Ojoj...og svo er ekki séns að ég gæti látið kviðrista mig vakandi takk fyrir:$ en við skulum sjá hvað setur:$

Vá var ekki gaman að lesa svona heilsufarssögu??;)

Oddný og Sigurjón voru sko aldeilis búin að huxa sér gott til glóðarinnar að komast í fría hvalaskoðun og mættu hérna til mín á miðvikudaginn:) en ég held að þau hafi orðið fyrir hálfgerðum vonbrigðum með hvalinn sem var til sýnis:haha: þeim allavega fannst ég ekkert vera eins og hvalur8) eða svo sögðu þau:haha: en það var rosa gaman að fá þau í heimsókn eins og alltaf:)

Nú eru elsku litlu hundarnir mínir fluttir út úr svefherberginu á nóttuni því ég verð að venja þau á að sofa frammi áður er barnið fæðist og núna sofa þau í stofunni og mér finnst þetta alveg hrikalegt því ég hef ekki sofið hundlaus í fimm ár:cry: og mér finnst sko ekkert betra en að kúra með 2 litlar loðnar heitar dúllur hjá mér8| ég á semsagt mikið erfiðara með að sætta mig við þetta en þau;)

jæja nóg af rausi í bili....


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 23:23:14 / ernagr

hellohello

Guð ég er svooooo heppinn alltaf að það háfa væri miklu meira en nóg:$ sko rifbeinsbrotið var nánast gróið,eða mig var allavega hætt að finna svona mikið til í því þegar ég fékk þessa helv....flensu og nú er það laust aftur og verkurinn orðin alveg jafn slæmur og áður ef ekki verri:$ .að nebbla fylgir hósti með þessari flensu:$

Við Henry skrúfuðum saman barnarúmið áðan og svona svo það er allt að verða reddý fyrir prinsinn,ég á bara eftir að strauja himnasængina og rúmfötin og kaupa eitthvað smádrasl,eins og snuð og taubleyjur og eitthvað þannig og þá má hann bara koma mín vegna:)

Það er yfirhalning í gangi þessa dagana,er að reyna að klóra í bakkann með að líta út eins og manneskja:$ það var airbrush í dag,svo eftir vinnu á morgun fer ég í litun og plokkun og svo eftir vinnu á föstudaginn fer ég á hárgreiðslustofuna í lit og klippingu:haha: ég hef sko aldrei farið á stofu að láta lita augnhárin og brýrnar því ég þarf það ekkert sérstaklega sko enda alltaf máluð og svona en ég vænti þess að ég verði ekki eitthvað voða máluð og fín á fæðingardeildini þannig að það er best að láta lita þetta áður svo ég verði nú ekki eins og fífl í framan þarna:haha: svo hefði ég helst viljað fara í Debenhams eða eitthvað til að kaupa nýjann silki slopp og svona til að hafa með mér því mér væri ekki einusinni vel við að láta sjá mig dauða í eign þvottahúsa ríkisspítalana bol:$ mér finnst það hryllingur:$ kanski ég skelli mér í verslunarleiðangur um helgina:)

well ætla í bælið...lifið heil


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 15:40:35 / ernagr

Gleðilega páska!!!

Jæja þá er ég komin heim úr firðinum fagra...kom reyndar á fimmtudagskvöldið,eftir að hafa verið í veislum allann daginn,ég var orðin ansi lúin þegar eg komst loksins heim til mín um 11 um kvöldið:$ en þetta var samt bara fínt...alltaf gaman að hitta ættingjana og svona:)

Páskarnir eru víst að verða búinir.ótrúlegt hvað svona frí geta verið fljót að líða:S en ég er nú búin að nota það ágætlega þrátt fyrir að vera með einhvern flensuskít sem ég nældi mér í á Eskifirði:S get víst ekki farið þangað án þess að koma með eitthvað þannig til baka:S eða þannig sko...um jólin kom ég fárveik heim og svo núna líka með einhvern andskotann.......en þegar ég fór þangað þar áður þá kom ég ólétt heim,sem er reyndar gott og blessað,ég held nebbla að krakkinn hafi náð bólfestu i mér þar,samkvæmt útreikningum mínum er það allavega þannig;)þannig að já maður getur nælt sér í ýmislegt á Eskifirði sko:haha:

Ég held að hreiðurgerðin sé komin á fullt skrið hjá mér:) enda bara eðlilegt þar sem þetta er bara allt að koma;) ég allavega eyddi gærdeginum og deginum í dag í heimilisþrif og þvott á barnafötum og á morgun ætla ég að skrúfa saman rúmið og allt það. þá er bara nánast allt reddý:) nema ég á eftir að kaupa eitthvað smá. en það er gott að vera búin að svona miklu á meðan ég er í fríi því mig grunar að ég verði ekkert öfga fír og flamme eftir vinnu héðan í frá:$ en samt það er aldrei að vita þegar ég á hlut:haha: mig er nú farið að langa svoltið að losna við þennann belg framan á mér:) ég er nebbla farin að finn vel fyrir honum núna sérstaklega þegar ég er að þrífa og svona8| maður bara fær þetta í andlitið þegar maður er að beygja sig og svona:haha

jæja nóg í bili,þarf að fara í búð og kaupa meðlæti með páskasteikinni og svona

Hafið það gott;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 00:49:50 / ernagr

Well

Nú er ég stödd í firðinum fagra,en bara rétt tilli niður fæti hérna og fer svo aftur því ég er svo hrædd um að ég gæti farið að gjóta eða eitthvað....... vil helst framkvæma það aðeins nær heimili mínu, þannig að ekki búast við mér í heimsókn,þetta verður MJÖG stutt stopp. Broskallarnir virka ekki á þessari tölvu einhverra hluta vegna og það reynist mér gríðarlega erfitt að blogga án þeirra.....þeir eru greinilega orðin stór partur af tjáningarferlinu hjá mér. Gleðilega páska allir saman,blogga kanski aftur þegar ég kemst heim og get tjáð mig betur með brosköllum.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Tölvuleikir